litliwog
15.07.2006 18:01:51 / gudny

Öhm, Einbeiting, Erfitt

Ef ég er að drekka bjór og hlusta á Frank Ferdinand, er ég þá að læra undir próf?
Ekki. hmm.
En ef ég er samt alveg að lesa og er með blýant í hendinni?
Oh, þið eruð hörð.
Takk fyrir þið sem munduð eftir afmælinu mínu, hvort sem þið voruð á fjöllum, í amríku, með hausverk eða annarsstaðar. Hér var haldið villt teiti, sem ég því miður tók ekki fullan þátt í vegna eftirkasta af Íslandsdvölinni og ómannlegra fórna til að skila skýrslu daginn eftir að ég kom heim, sem var svo fylgt eftir með guðdómlegum afmælispönnukökum frá Freyju daginn eftir.

Mér hefði aldrei dottið í hug hvað það er erfitt að læra undir svona staðið, fallið próf. Hvar er hugsjónin, í dag er dagurinn til að lifa og hrærast með atómum og mólekúlum, svona meðvitað. Þau snúast, titra, lenda í allskonar flóknum víxlverkunum við sjálfa sig og aðra, og senda frá sér skilaboð og róf sem getur verið erfitt að túlka. Maður verður að kunna á þau aðeins. Jæja litlu Mólekúl, nú ætlar Guðný frænka að koma og skilja ykkur. Einn tveir og nú.
baldur skrifaði
blessuð atómin, óþekktar ormar
Freyja skrifaði
Þetta hljómar æsispennandi, ég er samt hrifnust af rafeindunum, einförunum sem geta aldrei bundist öðrum rafeindum. þassaðu þig nú á geislavirku sýnunum. Hugsa til þín á eftir Knús Freysla
Freyja skrifaði
passaðu þig meina ég! Steikt eftir andvökunótt, veit ekki hvað er að gerast knús Freysla
Cowboydan skrifaði
Úff vona að það hafi gengið vel í dag, svaraðu nú póstinum þínum þegar þú ert búin að jafna þig. FingurkrossaðarKveðjur Ingimar

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.