|
08.07.2007 19:46:50 / gudny
Ég hef bara eitt að segja:
farið að logga ykkur inn á skype!
ég er "talavidgudnyju".
»
05.04.2007 14:43:45 / gudny
Þessi síða er viðbjóðsleg! Í augnablikinu eru 3 mismunandi
blikkandi og skrollandi auglýsingar á síðunni í einu, ein af þeim
tekur yfir tölvuna mína og framleiðir hljóð, og allar auglýsa þær
eitthað sem ég vil helst ekki vera minnt á, eins og íslenskar
fermingargjafir.
Nei, þessi síða er álíka hugguleg og amerískur sportbar, eða
kringlubíó.
Semsagt, ef ég fyllist hetjumóð opna ég mér nýjan stað, hér er
ómögulegt að vera, og þá sendi ég ykkur póst.
liebe gruesse
Gudny
»
09.12.2006 12:19:53 / gudny
Ég er með örlitla innilokunarkennd í stórborginni, ég hlakka svo
til að hitta ykkur um jólin, sjá Esjuna, snjóinn og himininn sem er
milljón sinnum stærri í Reykjavík en hér.....
Ég hlakka meira að segja til að sitja með Ingimari í bíl á
Ártúnsbrekkugötunni þarna sem liggur niður í bæ. Það sem ég hlakka
ekki til er að fatta að tobba kemur ekki heim. Ég styð Tobías heim.
»
02.12.2006 09:29:53 / gudny
Þetta er nú örugglega ekki rétt skrifað hjá mér.
Svo veit ég ekki hvort ég tek undir þetta, hefndin fór nú ekki vel
með land vort hér á árum áður.
Ég veit ekki hvort það er þýskaland, eða bara nóvember.
æ, ég kann ekki að blogga lengur. En ég sakna ykkar.
»
25.10.2006 06:36:14 / gudny
»
25.09.2006 17:26:30 / gudny
hefur verið opnuð. Ég er komin með flickersíðu, þar sem að ég vil
halda möguleikanum opnum að birta myndir af vinum, kunningjum eða
jafnvel sjálfri mér, ofurölvi eða á annan hátt ósiðsömum er ég með
þær læstar, allt of flókið að þurfa að taka ákvörðun um hverja og
eina. Svo sendið mér póst ef þið viljið sjá.
Því miður er ansi langt síðan ég varð vitni að ósiðsamlegri hegðun.
Það var kokteilpartý hjá félaga Freyju í djassdeildinni á
laugardag, en í staðinn fyrir að fara og leita að Jarvis Cocker
hins nýja árþúsunds fór ég í háttinn um tíuleytið. Ef þið kíkið á
myndirnar sjáið þið ástæðu þess að ég er farin í háttinn fyrir
myrkur og vakna við sólarupprás.
»
10.09.2006 12:58:52 / gudny
Hvernig er staðan? Ég spyr mig, held að þetta sé vel gerð
hryllingsmynd, á yfirborðinu lítur ekkert út fyrir að vera að
gerast, en nærmyndir af kóngulóm að læðast yfir hvít lök, furðuleg
og teygð rafhljóð að kvöldlagi, og óvæntar og óútskýrðar kvalir sem
lýsa sér í andlitsdráttum söguhetjunnar þar sem hún situr í
almenningsvögnum (ætli það sé sönnun, eða sársaukafull minning?),
segja mér að setja sængina fyrir annað augað.
Allir vita að svona mikil einbeiting, fjarlægð og furðulegheit geta
bara endað í einn hátt: í blóðugu endatafli, þar sem söguhetjan
þarf að beita kænsku og líkamlegum yfirburðum til að ráða
niðurlögum hins illa.
Já, ég er hin útvalda, ég mun mæta Dr. Wolff, og þrátt fyrir að
vera með lítil brjóst, bumbu og undirhöku ætla ég ekki að deyja á
fyrsta korterinu.
Andreas: Diplompruefung, kein kaffee.
»
30.08.2006 14:45:56 / gudny
Fáir eru jafn góðir í að þroskast og afmælisbarn dagsins, samfellt
og örugglega. Sem betur fer hefur honum tekist að gera það án þess
að hætta að vera himgimp.
Gleðilegt Sushi, sæti.
»
24.08.2006 08:52:30 / gudny
»
16.08.2006 20:03:33 / gudny
Það er ekki bara margt í mörgu, heldur býr líka margt í djúpinu.
Hér er ég komin aftur í sömu yndislegu berlínarbúbbluna mína en
ekki er allt eins og var.
Ég byrja daginn að vísu á sama hátt og oft áður með því að rölta á
appelsínugula kaffihúsið á horninu, en á leiðinni hefjast
ástríðufullir endurfundir húðar minnar við sólina, og ég sé svo
margt fólk sem ég ekki þekki og fatta að ég er að horfa í augun á
öllum til að gá hvort ég þekki þá. Svo ég hætti því og fer að horfa
niður, þangað til ég rek augun í berar táslur, sem labba yfir sama
skítuga malbikið, svo ég fer að velta fyrir mér hvort að eigandi
þeirra sé kannski FKK heima hjá sér.
Stuttu síðar fell ég í stafi yfir grænmetinu í bio-búðinni, sem
kostar samt minna en í bónus.
Á einhvern undursamlegan hátt er Berlín ný, og ég er ný. Þá veit
maður það, endurnýjunarhraði minn eru uþb 10 dagar. Veröld ný og
góð...
»
24.07.2006 09:02:31 / gudny
Jæja krakkar, ef ég væri ameríkani mundi ég örugglega segja: mér
líður eins og milljón dollarar. Þrátt fyrir brjálæðið í heiminum,
hitann, skýrsluna og svo framvegis. Skýrslan gengur reyndar
massahratt í augnablikinu, álíka hratt og vatnsflaskan við hlið
mér, sem einnig er í réttu hlutfalli við svitapollinn á gólfinu. Ef
hann gufaði ekki jafn óðum upp.
»
15.07.2006 18:01:51 / gudny
Ef ég er að drekka bjór og hlusta á Frank Ferdinand, er ég þá að
læra undir próf?
Ekki. hmm.
En ef ég er samt alveg að lesa og er með blýant í hendinni?
Oh, þið eruð hörð.
Takk fyrir þið sem munduð eftir afmælinu mínu, hvort sem þið voruð
á fjöllum, í amríku, með hausverk eða annarsstaðar. Hér var haldið
villt teiti, sem ég því miður tók ekki fullan þátt í vegna
eftirkasta af Íslandsdvölinni og ómannlegra fórna til að skila
skýrslu daginn eftir að ég kom heim, sem var svo fylgt eftir með
guðdómlegum afmælispönnukökum frá Freyju daginn eftir.
Mér hefði aldrei dottið í hug hvað það er erfitt að læra undir
svona staðið, fallið próf. Hvar er hugsjónin, í dag er dagurinn til
að lifa og hrærast með atómum og mólekúlum, svona meðvitað. Þau
snúast, titra, lenda í allskonar flóknum víxlverkunum við sjálfa
sig og aðra, og senda frá sér skilaboð og róf sem getur verið
erfitt að túlka. Maður verður að kunna á þau aðeins. Jæja litlu
Mólekúl, nú ætlar Guðný frænka að koma og skilja ykkur. Einn tveir
og nú.
»
29.06.2006 15:33:34 / gudny
Það var svo gott og gaman að koma heim að ég ætla að koma aftur!
frá 1 til 15 ágúst verð ég á Íslandi að drekka kaffi á sæbóli,
hanga í símanum, og jafnvel drekka appelsín. Trúið þið því , að
vikan var svo stutt að ég náði ekki að drekka eina einustu
appelsín? Það, og að Ísland er að breytast í kapítalíska Martröð
með Morðóðu ívafi. Þ.e. það er ekki hægt að kaupa Appelsín
neinstaðar, bara kók.
Þið sjáið, ég verð að koma heim, hér skilur enginn að það sé fyndið
að stuðla.
Ég hélt að ég mundi frjósa í hel, en samt er einhver týnd
ættjarðarást að skjóta upp kollinum og heimta fjöll, sjó,
raunveruleika, og auðvitað mitt heittelskaða fólk.
Já: að praktísku máli:
Er einhver að fara til Berlínar í fyrrihluta Ágústmánaðar? Ég vil
swinga íbúðinni minni fyrir samastað í Reykjavík. (og ekki hafa
áhyggjur Baldur, bróður þinn gengur engu að síður að
gestaherberginu vísu)
guðný
»
12.05.2006 08:33:28 / gudny
Knús sætilús.
Stundum er heimurinn fullur af afturfótum, samvöxnum vid
vekjaraklukkur og blómstrandi tré. Kaldur sviti. Internetleysid
hefur ymiskonar ahrif. T.d. ma eg ekki fara heim nuna, thvi ad tha
get eg aldrei klarad skyrsluna fyrir manudag. Auk thess sem eg hef
lofad ad blasa sapukulur fyrir born og telja theim thannig tru um
ad edlisfraedi se skemmtileg.
Nidur med tré.
Nidur med vekjaraklukkur
Upp upp mitt geð og öll mín sál?
p.s. ég er búin að uppfæra simanumer + busetu
»
05.05.2006 11:21:33 / gudny
Hæ ég er flutt til Friedrichshain, og komin með nýtt símanúmer og
heimilisfang. Og ekki með internetid. Thetta thydir ad eg er ekki
buin ad gleyma ykkur tho ad eg skrifi ekki og se ekki a msn.
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|